Viðskipti
| Morgunblaðið
| 19.5.2004
| 5:30
| Uppfært
8:25
Yfirverð á hlutabréfamarkaði
Greiningardeild Landsbankans telur að íslenski hlutabréfamarkaðurinn sé í heild sinni talsvert yfirverðlagður. Miðað við verðmatsgreiningu deildarinnar er vænt ávöxtun LAISEX -0,1%, sem er lækkun úr 6,9% væntri ávöxtun frá síðustu útgáfu.
LAISEX er vísitala greiningardeildarinnar og inniheldur 18 fyrirtæki í Kauphöllinni sem standa fyrir 90% af markaðsverði hlutabréfa á Aðallista.
Í umfjöllun greiningardeildarinnar segir að fyrir utan þá hækkun sem orðið hafi á markaðnum þá hafi ávöxtunarkrafa til hlutbréfa farið hækkandi vegna hækkunar á áhættulausum vöxtum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















