Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.10.2004
| 5:30
| Uppfært
6:58
Verð hlutabréfa tvítugfaldast
Verðhækkanir á hlutabréfum í Kauphöll Íslands síðastliðin tvö ár eru "út úr korti" miðað við hlutabréfamarkaði erlendis, að mati Ágústs Einarssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Segir hann hlutabréfaverð hér á landi hafa tvítugfaldast á tólf árum miðað við verðlag. "Síðustu tvö árin hefur þróunin verið mjög einkennileg. Þá var árleg verðbólga innan við 3%, félögum í Kauphöllinni hefur fækkað úr 64 í 40, eða um tæp 40%, en verð hlutabréfa skv. vísitölu aðallista á þessum tveimur árum hefur nær þrefaldast."
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















