Viðskipti
| Morgunblaðið
| 18.11.2004
| 5:30
| Uppfært
7:35
Áhyggjur af lokun Magasin á Fjóni
Íbúar á Fjóni í Danmörku hafa nokkrar áhyggjur af framtíð Magasin-verslunarinnar í Óðinsvéum eftir kaup Baugs, Straums og Birgis Bildtvedt á Magasin-verslunarkeðjunni í síðustu viku. Óstaðfestur orðrómur er uppi, samkvæmt fréttavef Fyens, um að loka eigi einni af átta stórverslunum Magasin í Danmörku og þykir líklegt að Magasin-verslunin í Óðinsvéum verði fyrir valinu vegna slakrar frammistöðu. Í Berlingske Tidende er haft eftir talsmanni nýju eigendanna að allar ákvarðanir þar um séu í höndum hins nýja forstjóra Magasin, Peters Husum. Hann muni einnig taka ákvörðun um hvort Magasin komi í framtíðinni til með að kaupa inn vörur í félagi við "stóra enska vöruhúsakeðju".
Því hefur jafnvel verið haldið fram að af átta verslunum Magasin verði einungis haldið eftir þeim tveimur verslunum sem staðsettar eru í Kaupmannahöfn og versluninni í Árósum. Stjórnarformaður Magasin, Henrik Wedell Wedellsborg, vísar þessu á bug og telur að einungis gæti verið um að ræða lokun eða flutning á einni stakri verslun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















