Viðskipti
| Morgunblaðið
| 19.11.2004
| 5:30
| Uppfært
7:25
Háleit markmið eigenda Magasin
Nýir eigendur Magasin du Nord hafa sett sér það markmið að snúa taprekstri fyrirtækisins í hagnað, í að minnsta kosti 10% af veltu sem samsvarar 2,34 milljörðum króna, og að fyrirtækið eigi að skila hagnaði ekki seinna en árið 2006.
Það vekur athygli danskra fjölmiðla að um leið og flestar danskar stórverslanir skera niður séu hinir íslensku eigendur Magasin að spenna bogann. Í Børsen er haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Birgi Þór Bieltvedt að meðal annars sé í skoðun að stofna Magasin-verslanir í Svíþjóð og jafnvel að breyta Debenhams-verslunum Baugs í Stokkhólmi og í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn. Í samtali við Berlingske Tidene segir Jón Ásgeir að með sameiginlegum innkaupum Magasin og Debenhams sé hægt að lækka útgjöld Magasin verulega sem sé fyrsta skrefið í áttina að því að breyta Magasin í arðbært fyrirtæki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















