Íslendingarnir keyptu Magasin „á útsölu“
Hin fornfræga stórverslun Magasin du Nord stendur rétt við Kongens nytorv. mbl.is/Ómar
Þrír íslenskir aðilar keyptu keðjuna, Baugur Group, Straumur fjárfestingabanki og B2B Holdings.
Jón Ásgeir Jóhannsson, forstjóri Baugs, segir í samtali við Berlingske að fyrir tveim árum hafi Magasin haft samband við Baug í tengslum við fréttir af því að fyrirtækið ætlaði að opna Debenhams-verslun í Danmörku. Þá hafi Baugur grannskoðað Magasin, en niðurstaðan orðið sú að ekki væru forsendur fyrir því að kaupa keðjuna.
„En síðan þá hefur efnahagsástandið farið að batna og í september fórum við að kanna málin betur,“ er haft eftir Jóni Ásgeiri.
Blaðið segir hann ekki draga dul á með kaupunum komi íslensku fjárfestarnir höndum yfir eignir Magasin, sem séu meira virði en nemur kaupverðinu á keðjunni.
Þá hefur blaðið eftir fjármálastjóra Baugs, Stefáni Hilmarssyni, að þótt rekstur Magasin gangi ekki sérlega vel einmitt núna hafi verðið verið mjög hagstætt.
Magasin var stofnað árið 1868 og rekur nú 8 deildarskiptar stórverslanir, sú þekktasta á Kóngsins Nýjatorg í hjarta Kaupmannahafnar en einnig eru verslanir í Álaborg, Óðinsvéum og Árhúsum og er velta þeirra samtals um 30 milljarðar íslenskra króna, samkvæmt upplýsingum Kauphallar Íslands.



















