Segist hafa fengið 1,5 milljarða að láni til að kaupa Magasin
Hin fornfræga stórverslun Magasin du Nord stendur rétt við Nýjatorg í Kaupmannahöfn. mbl.is/Ómar
Fram kom á sínum tíma að Baugur Group, Straumur fjárfestingarbanki og félag í eigu Birgis hefðu keypt eignarhaldsfélagið sem á Magasin. Hlutur Baugs í kaupunum er 42%, þriðjungur er Straums og fjórðungur Birgis. Þá var tilkynnt, að fjárfestar muni stofna félag sem muni eiga þennan eignarhlut. Kaup Íslendinganna á Magasin hafa vakið mikla athygli í Danmörku og hefur verið fjallað reglulega um viðskiptin og íslensku kaupsýslumennina í dönskum fjölmiðlum að undanförnu.
Í viðtalinu við Berlingske Tidende segist Birgir hafa fengið lánið út á andlitið og vegna þess að hann hafi átt hugmyndina að því að kaupa Magasin og borið hana undir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs Group, og Straum. Birgir segir að bankarnir séu ekki að taka áhættu með því að lána sér féð, því þeir fái veð í hlutabréfunum.
„Það felst ekki í þessu nein áhætta ef maður hefur trú á Magasin og við munum reisa fyrirtækið við. Þá mun ég sjálfur hagnast," hefur blaðið eftir Birgi.
Birgir rekur fyrirtækið B2B Holdings, sem á 55% hlut í fyrirtækinu Scandinavian Pizza Company í Danmörku. Það fyrirtæki hefur samning um að reka pítsustaði í Skandínavíu undir vörumerkinu Domono´s Pizza. Berlingske Tidende segir að fyrirtækið hafi ekki birt tölur um veltu en til þessa hafi verið tap á rekstri sjö pítsustaða á Sjálandi. Síðustu fimm ár hafi tap á rekstrinum verið milli 2,3-11 milljóna danskra króna en Birgir segir að eftir að hann keypti meirihlutann í fyrirtækinu árið 2002 hafi reksturinn gengið betur og fyrirtækið skili nú hagnaði. Áformað sé að opna Dominos's staði í Svíþjóð á næsta ári.



















