BTC lýsir áhuga á 3-kynslóðar farsímarekstri í Búlgaríu
Höfuðstöðvar BTC í Sofíu. mbl.is/Soffía
Að sögn Gergana Sarbova, yfirmanns búlgörsku fjarskiptastofnunarinnar, verða leyfin veitt til 20 ára og þau félög, sem hreppi leyfi, eigi að geta hafið starfsemi innan tveggja ára.
Fram kemur í frétt AP fréttastofunnar, að fimm símafélög, Mobiltel, BTC, Cosmo Bulgaria Mobile í Grikklandi, breska félagið First Place IR og sænska félagið Tele2, hafi lýst yfir áhuga á að taka þátt í útboðinu. Hvert félag fær aðeins að bjóða í eitt rekstarleyfi.
Ekkert félag býður UMTS-þjónustu í Búlgaríu. Bæði Mobiltel og Cosmo Bulgaria Mobile bjóða GSM-þjónustu og BTC hefur GSM-rekstrarleyfi en hefur ekki hafið þjónustu enn.
Búlgarska ríkið seldi í júní á síðasta ári 65% eignarhlut í BTC til Viva Ventures, að því félagi standa m.a. Björgólfur Thor Björgólfsson, Síminn, Burðarás og Straumur.



















