Tæp 35% í BTC seld á markaði í dag
Þar með lýkur einkavæðingu á þessu fyrrum ríkisrekna fyrirtæki en Björgólfur Thor Björgólfsson og fleiri íslenskir fjárfestar eru meðal hóps fjárfesta, undir merkjum Viva Ventures, sem keyptu fyrr á árinu 65% kjölfestuhlut í félaginu.
Björgólfur Thor sagði í samtali við Morgunblaðið að Viva Ventures myndi ekki bjóða í bréfin. "En það eru ýmsir að bjóða í þau og við könnumst við þá alla," sagði hann án þess að vilja upplýsa hvort hann sjálfur væri þar á ferð.
Lágmarksverð fyrir hvern hlut verður 100 búlgarskar levur og verða þeir einungis seldir gegn "þóknunarbréfum", sérstökum verðbréfum sem gefin voru út sem form skaðabóta eftir fall kommúnismans í Búlgaríu. Hlutina sem keyptir verða í dag má svo selja á markaði strax á morgun gegn reiðufé og búist er við líflegum viðskiptum með hlutabréf í BTC á næstu vikum.



















