Viðskipti
| mbl
| 3.3.2005
| 9:32
Segja að sér hafi verið mismunað í tengslum við söluna á Magasin
Hópur hluthafa í Magasin í Danmörku telur að fyrri stjórn fyrirtækisins hafi leynt þá upplýsingum í aðdraganda þess að íslenska eignarhaldsfélagið M-Holding keypti Magasin. Er verið að undirbúa málssókn, að sögn Berlingske Tidende.
Blaðið hefur hins vegar eftir Claus Abildstrøm, núverandi stjórnarmanni í Magasin og lögmanni M-Holding, að öllum reglum dönsku kauphallarinnar hafi verið fylgt við söluna.
Blaðið segir að hluthafarnir telji sig ekki hafa setið við sama borð og stóru hluthafarnir varðandi upplýsingar um söluna á fyrirtækinu.
M-Holding ræður nú yfir nærri 97% hlutafé í Magasin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















