Þáttur ehf. kaupir 66,6% hlut í Sjóvá
mbl.is
Fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka, að sahliða viðskiptunum hafi verið ákveðið að stofna öflugt fjárfestingarfélag í eigu Íslandsbanka, Þáttar og Sjóvá. Markmið nýrra eigenda Sjóvá sé að treysta sterka markaðsstöðu félagsins enn frekar með aukinni sókn samhliða eðlilegu aðhaldi í rekstri.
Íslandsbanki keypti allt hlutafé í Sjóvá fyrir átján mánuðum fyrir 19,4 milljarða króna en söluverðið til Þáttar samsvarar 26,2 milljörðum króna heildarverðmæti félagsins. Við söluna innleysir bankinn 3,4 milljarða króna hagnað fyrir skatta af selda hlutnum auk þess sem Sjóvá hefur greitt Íslandsbanka 3,5 milljarða króna í arð frá því bankinn eignaðist félagið. Salan styrkir eiginfjárgrunn Íslandsbanka um ríflega 15 milljarða króna og segir í tilkynningunni, að miðað við núverandi eiginfjárstefnu bankans skapist að öðru óbreyttu svigrúm fyrir mögulegan 200 milljarða króna útlánavöxt.
Milestone ehf. hefur á undanförnum árum einbeitt sér fyrst og fremst að fjárfestingum innanlands og á meðal annars 12,5% hlutafjár í Íslandsbanka. Segir í tilkynningunni, að með kaupunum á ráðandi hlut í Sjóvá hafi verið tekin ákvörðun um þátttöku til langs tíma í rekstri stórra og traustra fjármálafyrirtækja á Íslandi.
Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppnisstofnunar.



















