Stjórn SPH hefur ekki stuðning til að fjölga stofnfjáraðilum

Stjórn sparisjóðs Hafnarfjarðar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur m.a. að Stjórn SPH telji það af hinu góða ef öflugir fjárfestar hafa áhuga fyrir sparisjóðnum og séu reiðubúnir til að fjárfesta í stofnfé hans. Þá sé það vilji þeirra manna sem tóku við stjórn SPH hinn 20. apríl s.l. að fjölga stofnfjáraðilum. Til þess þurfi hins vegar stuðning 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi og þann styrk hafi stjórnin ekki í stofnfjáraðilahópnum.

Fréttatilkynning stjórnarinnar fer hér á eftir í heild sinni:

Undanfarna daga hafa málefni Sparisjóðs Hafnarfjarðar mikið verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og þá einkum hugsanleg sala á stofnfé sparisjóðsins. Það hefur ekki verið venja þeirra sem farið hafa með stjórn SPH að ræða málefni sjóðsins, einstakra stofnfjáraðila, viðskiptamanna eða starfsmanna í fjölmiðlum. Vegna hinnar háværu umræðu, alvarlegra ásakana í garð stjórnarmanna og annarra, auk kviksagna sem hafa verið á kreiki í bæjarfélaginu, telur stjórn SPH þó nauðsynlegt að breyta frá þessari venju nú og koma örfáum athugasemdum á framfæri.

Lögum um sparisjóði hefur verið breytt undanfarin ár og meðal annars ákveðið að sparisjóðir skyldu hafa ákveðið lágmarks stofnfé, sem selt yrði og að sjóðunum yrði stjórnað af eigendum þessa stofnfjár. Jafnframt var í lögunum ákveðið að þeir sem verið höfðu í ábyrgð fyrir sjóðina ættu rétt á því að breyta ábyrgðum sínum í stofnfé. Á þeim tíma voru ábyrgðarmenn SPH 27 en vegna krafna laganna um lágmarksfjölda ábyrgðarmanna var þeim þá fjölgað nokkuð. Lítil fjölgun hefur verið í hópi stofnfjáraðila síðustu ár en þeir eru nú 47. Var það eindregin afstaða fyrri stjórnar sjóðsins að fjölga ekki stofnfjáraðilum og fara ekki þá leið að bjóða starfsmönnum og mikilvægum viðskiptavinum að kaupa stofnfé í SPH.

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóður vélstjóra, Sparisjóður Kópavogs og Sparisjóðurinn í Keflavík fóru allir þá leið eftir lagabreytinguna að margfalda fjölda stofnfjáreigenda í sjóðunum og voru þeir t.d. þegar flest var u.þ.b. 1.200 í SPRON, tæplega 700 í SPV og rúmlega 600 í SPKef. Viðskipti hafa verið fjörleg með stofnfé í þessum sjóðum og hefur t.a.m. meira en helmingur alls stofnfjár í SPRON skipt um eigendur á allra síðustu misserum. Engin höft eru á viðskiptum með bréf í þessum sjóðum en þau eru háð samþykki stjórnar samkvæmt lögum. Engin viðskipti hafa nokkru sinni verið með stofnbréf í SPH þrátt fyrir margítrekaðar óskir um kaup á bréfum, þ.á.m. frá starfsmönnum.

Til þess er þetta rakið að vekja athygli á þeirri sérstöðu sem verið hefur með stofnfjáreignina í Sparisjóði Hafnarfjarðar en hún skýrir væntanlega þá athygli sem fréttir um hugsanlega sölu stofnbréfa nú hefur vakið á sama tíma og það hefur enga athygli vakið að stærsti sparisjóður landsins hefur skipt um eigendur.

Það er vilji þeirra manna sem tóku við stjórn SPH hinn 20. apríl s.l. að fjölga stofnfjáraðilum. Til þess þarf hins vegar stuðning 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi en þann styrk hefur stjórnin ekki í stofnfjáraðilahópnum. Það var jafnframt afstaða hinnar nýju stjórnar að standa ekki í vegi fyrir því ef stofnfjáraðilar vildu framselja bréf sín. Slík beiðni hefur ekki borist stjórninni. Berist slík beiðni verður hún að sjálfsögðu tekin fyrir og fullnægi hún skilyrðum laga mun sitjandi stjórn væntanlega taka hana til greina.

Með hliðsjón af þeirri þróun sem orðið hefur hjá þeim fjórum sparisjóðum sem farið hafa út í það að auka stofnfé sitt og setja viðskipti með stofnbréf jafnframt frjáls er ekkert óeðlilegt við það að fjárfestar sýni bréfum í SPH áhuga. Stjórn SPH telur það af hinu góða ef öflugir fjárfestar hafa áhuga fyrir sparisjóðnum og eru reiðubúnir til að fjárfesta í stofnfé hans. SPH þarf á því að halda að nýir og öflugir einstaklingar komi að stjórn sjóðsins og rekstri.

Hafnarfirði, 24. júní 2005
f.h. stjórnar Sparisjóðs Hafnarfjarðar
Páll Pálsson, formaður

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir