Engin viðskipti með stofnbréf SPH
Viðskipti með stofnfjárbréf í sparisjóði eru, lögum samkvæmt, háð samþykki stjórnar hans. Stjórn SPH segist ekki munu standa í vegi fyrir því ef stofnfjáraðilar vilja framselja bréf sín. Beiðni þess efnis hafi hins vegar ekki borist stjórn sjóðsins. "Berist slík beiðni verður hún að sjálfsögðu tekin fyrir og fullnægi hún skilyrðum laga mun sitjandi stjórn væntanlega taka hana til greina," segir stjórn SPH.
Stjórnin lýsir jafnframt yfir vilja sínum til að fjölga stofnfjáraðilum, sem nú séu 47 talsins. Til þess þurfi hins vegar stuðning 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi en þann styrk hafi stjórnin ekki í stofnfjáraðilahópnum. "Með hliðsjón af þeirri þróun sem orðið hefur hjá þeim fjórum sparisjóðum sem farið hafa út í það að auka stofnfé sitt og setja viðskipti með stofnbréf jafnframt frjáls er ekkert óeðlilegt við það að fjárfestar sýni bréfum í SPH áhuga," segir í tilkynningu stjórnarinnar.
Fjármálaeftirlitið, FME, sendi í gær öllum stofnfjáreigendum í SPH bréf þar sem minnt er á að aðilum sem hyggist eignast virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki beri, lögum samkvæmt, að leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrirfram.
Óskar FME eftir upplýsingum frá stofnfjáreigendunum um hvort þeir hafi selt stofnfé sitt í SPH, þeim borist tilboð í það eða hvort þeir hafi gerst aðilar að samkomulagi um beitingu atkvæðisréttar á aðalfundi sjóðsins í apríl sl. Segist FME hafa til skoðunar hvort virkur eignarhlutur [10% eða meira] sé til staðar í sparisjóðnum og hvort fyrirætlanir séu um sölu stofnfjár í sparisjóðnum eða hvort slík sala hafi átt sér stað.



















