Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.7.2005
| 5:30
| Uppfært
7:15
Björgólfur Thor í samningaviðræðum um kaup á einum af stærstu bönkum Búlgaríu
Björgólfur Thor Björgólfsson á nú í viðræðum við eigendur búlgarska bankans Economic and Investment Bank (EI Bank) um kaup á allt að 50% hlut í bankanum. EI Bank er meðal tíu stærstu banka Búlgaríu, með höfuðstöðvar í Sófíu, höfuðborg landsins, að sögn Björgólfs Thors, og er líklega sá áttundi stærsti þar í landi.
Björgólfur Thor sagði í samtali við Morgunblaðið seint í gærkvöldi að hann hefði um hríð átt í þessum viðræðum. "Þeim hefur miðað vel, það er óhætt að segja, en enn er ekki komin niðurstaða í málið og enn hafa engir samningar verið undirritaðir," sagði Björgólfur Thor. Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















