Viðskipti
| mbl
| 15.7.2005
| 10:10
Gengið frá sölu á meirihluta bréfa í Sjóvá
Formlega var gengið frá sölu á og greiðslu fyrir tæplega 2/3 eignarhlut Íslandsbanka í Sjóvá til Milestone ehf. í gær. Hluthafafundur kaus nýja stjórn Sjóvá en hana skipa Bjarni Ármannsson, Benedikt Jóhannesson, Karl Wernersson, Guðmundur Ólason og Jón Scheving Thorsteinsson.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir, að þar sem Sjóvá sé ekki lengur dótturfélag bankans heldur hlutdeildarfélag muni forstjóri Sjóvár, Þorgils Óttar Mathiesen, ekki lengur sitja í framkvæmdastjórn Íslandsbanka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















