Viðskipti
| mbl
| 17.12.2005
| 12:00
Björgólfur Thor útnefndur fjárfestir ársins í Búlgaríu
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is
Novator, fyrirtæki Björgólfs Thors, fjárfesti nýverið í búlgarska landssímanum, BTC, og námu þau viðskipti nærri 100 milljörðum íslenskra króna. Fyrr á árinu keypti Novator 34% hlut í EI Bank en hann er áttundi stærsti bankinn í Búlgaríu með heildareignir upp á nærri 50 milljarða íslenskra króna.
Björgólfur Thor var einn þriggja sem tilnefndir voru sem fjárfestar ársins. Hinir voru Telecom Austria sem hefur komið sér fyrir á farsímamarkaði í Búlgaríu og Global Steel Holding sem er í eigu indverska auðkýfingsins Lakshmi Mittal.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















