Viðskipti
| AP
| 18.1.2006
| 14:51
Móðurfélag American Airlines tapar 604 milljónum dala
Reuters
Ef ýmiskonar kostnaður sem einungis kemur til í eitt skipti er undanskilinn, svo sem vegna endurskipulagningar á rekstri o.fl., nemur tap félagsins 473 milljónum dala, eða 2,39 dölum á hlut. Er þetta betri afkoma heldur en greiningaraðilar höfðu spáð.
Tap AMR nam 861 milljón dala árið 2005 samanborið við 761 milljón dala árið 2004.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















