Viðskipti
| Morgunblaðið
| 18.1.2006
| 5:30
| Uppfært
6:42
Ticket íhugar að selja í flug FlyMe
Sænska ferðaskrifstofan Ticket íhugar nú alvarlega að taka í sölu miða í flug lággjaldaflugfélagsins FlyMe. Norski vefmiðillinn boarding.no hefur eftir Lennart Käll, forstjóra Ticket, að ástæðan sé sú að FlyMe hafi aukið framboð sitt á sólarlandaferðum. Ekki er heldur talið skemma fyrir að Fons eignarhaldsfélag, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er stærsti hluthafinn í bæði Ticket og FlyMe.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















