FME segir hóp stofnfjáreigenda hafa náð óbeinum virkum eignarhlut í SPH

Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu að stofnast hafi óbeinn virkur eignarhlutur tiltekinna aðila í Sparisjóði Hafnarfjarðar á seinasta ári (SPH). FME tilkynnti stjórn sparisjóðsins þetta 20. febrúar sl. og jafnframt að eftirlitið hefði tekið ákvörðun um að tilteknir stofnfjáreigendur megi ekki fara sameiginlega með meira en 5% atkvæðisréttar í sparisjóðnum að því er fram kemur í gögnum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum.

Annars vegar er um að ræða fimm einstaklinga sem ekki mega fara saman með meira en 5% í sparisjóðnum og hins vegar tvö fyrirtæki sem sett eru sömu mörk. "Líkur benda einnig til þess að fleiri aðilar falli undir virkan eignarhlut í sparisjóðnum og atkvæðistakmörkun samfara því," segir í bréfinu.

Athugun á hæfi stjórnarmanna

Fór FME fram á það 20. febrúar að stjórn SPH frestaði aðalfundi sem boðaður var 21. febrúar um ótiltekinn tíma m.a. með vísan til þess að FME hefði ákveðið að taka til athugunar hæfi tiltekinna stjórnarmanna til þess að sitja í stjórn sparisjóðsins. Aðalfundurinn var eftir sem áður haldinn og var ný stjórn kjörin á þeim fundi.

Í bréfi FME til SPH kemur einnig fram að eftirlitið gerði þá kröfu í nóvember sl. að stjórn sparisjóðsins samþykkti engin frekari framsöl stofnfjárbréfa í sparisjóðnum þar til FME hefði lokið athugun sinni á hvort myndast hefði virkur eignarhluti í sparisjóðnum. Þá kröfu hafi stjórn SPH virt að vettugi.

Í bréfi FME til stjórnar sparisjóðsins segir m.a.: "Þá hefur stjórn sparisjóðsins virt að vettugi kröfu Fjármálaeftirlitsins um að samþykkja ekki frekari framsöl í sparisjóðnum á meðan athugun eftirlitsins stæði, sbr. bréf stjórnar sparisjóðsins til Fjármálaeftirlitsins, dags. 10. febrúar sl. er barst eftirlitinu 14. febrúar sl. Samþykkti stjórnin framsöl á 49 stofnfjárbréfum auk þess sem gerð var grein fyrir því að til stæði að samþykkja framsalsbeiðni vegna 4 stofnfjárbréfa. Samtals er um 53 stofnfjárbréf að ræða af 93 í sparisjóðnum. Eftirlitið hefur einnig til skoðunar hvort tilteknir aðilar sem samþykktir voru sem nýir stofnfjáreigendur á stjórnarfundi 10. febrúar sl. tengjast myndun virks eignarhlutar í sparisjóðnum."

Boðuðu ákvörðun um févíti

17. febrúar tilkynnti FME stjórn SPH fyrirhugaða ákvörðun eftirlitsins um að lagt verði févíti allt að tveimur milljónum kr. á sparisjóðinn "þar sem brotið hafi verið gegn áðurnefndri ákvörðun Fjármálaeftirlitsins" um að engin frekari framsöl í sparisjóðum yrðu samþykkt. Var stjórninni gefinn frestur til kl. 15 í gær til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna þessa.

FME hefur allt frá sl. sumri haft viðskipti með stofnfé í SPH til athugunar og hvort virkur eignarhlutur hafi myndast í sjóðnum í andstöðu við ákvæði laga. Hóf efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsókn á viðskiptunum í byrjun þessa árs.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir