Skeljungur aftur í eigu Fons ehf.

Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is
SKELJUNGUR er nú aftur kominn í eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Þeir hafa nú gengið frá kaupum á félaginu af Högum en kaupverðið er trúnaðarmál. Félag Pálma og Jóhannesar, Fengur, keypti Skeljung af KB banka snemma árs 2004 en seldi félagið til Haga síðla sama árs.

Að sögn Pálma var meginástæðan sú að honum var boðið að fjárfesta í Iceland-verkefninu á Bretlandi og söluféð notaði hann síðan til þess að fjárfesta í Iceland-keðjunni.

"Það er mjög sérstakt að í dag [í gær] var einmitt verið að greiða út 100% arð í Iceland þannig að það fé sem ég lagði í Iceland hef ég nú fengið til baka. Ég hafði frumkvæði að því að óska eftir að kaupa Skeljung og niðurstaðan varð sú að við gengum frá samningum í dag [í gær] þar sem við keyptum Skeljung aftur út úr Högum auk þess sem allur rekstur stöðvanna verður fluttur aftur inn í Skeljung - það var búið að flytja hann út úr Skeljungi. Nú er þetta sem sagt bara gamli góði Skeljungur," segir Pálmi.

Hann viðurkennir að Fons komi ekki beinlínis illa út úr þessum viðskiptum - félagið eigi eftir sem áður hlut sinn í Iceland-keðjunni en hafi nú jafnframt eignast Skeljung aftur.

Pálmi segir að burtséð frá því að stöðvarnar komi aftur inn í rekstur Skeljungs verði nánast allt óbreytt og Gunnar Karl Guðmundsson verði áfram forstjóri félagsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.

Grunaðir um skattsvik

14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »
Arion banki.

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

í gær Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

í gær Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
10.2. Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

10.2. Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

10.2. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
10.2. Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
10.2. Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
10.2. Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10.2. Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
10.2. Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
10.2. Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir