Viðskipti
| Morgunblaðið
| 3.3.2006
| 5:30
| Uppfært
6:39
Eignarhaldsfélagið Byr kaupir Tæknival
Eignarhaldsfélagið Byr ehf. hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Tæknivali en að félaginu standa sömu aðilar og eiga meirihluta í upplýsingatæknifélaginu Þekkingu, auk fleiri fjárfesta. Seljandi er Fons eignarhaldsfélag sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar og er kaupverðið trúnaðarmál.
Nýir eigendur hafa þegar tekið við félaginu og er Stefán Jóhannesson stjórnarformaður. Nýr forstjóri Tæknivals er Magnús V. Snædal. Sigrún Guðjónsdóttir fráfarandi forstjóri verður nýjum eigendum innan handar á næstu vikum.
Taprekstur hefur verið viðvarandi hjá félaginu undanfarin ár en velta síðasta árs nam um 1.100 milljónum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að gripið hafi verið til aðgerða til hagræðingar í rekstri félagsins og muni þær skila sér í bættri afkomu á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















