Glitnir fær A- í lánshæfismati Standard & Poor's
Glitnir er fyrstur íslenskra banka til að fá lánshæfismat hjá S&P.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að samkvæmt S&P endurspeglar matið sterka stöðu Glitnis á innanlandsmarkaði og bætta dreifingu í eignasafni bankans með vaxandi starfsemi bankans í Noregi.
Einnig er minnst á þann góða hagnað sem hefur verið í rekstri bankans á liðnum árum og almenn gæði eignasafnsins. S&P segir þá þætti sem vegi neikvætt við ákvörðun um lánshæfisflokk vera að bankinn hafi nokkra tiltölulega stóra lántakendur, hraðan vöxt eigna samhliða stefnumörkun sem mögulega eykur áhættu og það hvað heildsölumarkaður vegur þungt í fjármögnun bankans í erlendum myntum.
Haft er eftir Bjarna Ármannssyni, forstjóra Glitnis í fréttatilkynningu: „Við erum ánægðir með þetta lánshæfismat og þá staðreynd að við erum nú komin í „A flokk” hjá þremur stóru lánshæfisfyrirtækjunum. Gæði eignasafnsins og traust áhættustýring sýna vel styrk bankans og endurspeglast í þessu mati. Kaupin á BNbank í Noregi hafa enn bætt eignasafnið eins og S&P bendir á. Við trúum því að við getum haldið áfram að vaxa og auka hagnað Glitnis í samræmi við stefnumörkun bankans og þetta mat styður það.”
Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, segir í fréttatilkyningu: „Lánshæfismatið er í samræmi við okkar væntingar, með hliðsjón af annars vegar lánshæfismati íslenska ríkisins og hins vegar annarra norrænna banka. Glitnir fær mat sem er einu þrepi neðan við norræna banka á borð við SEB og Swedbank. Það er sami munur og er milli Glitnis og norrænu bankanna hjá hinum lánshæfismatsfyrirtækjunum. S&P bendir á að fjárstýring Glitnis sé góð, en vekur athygli á því hve bankinn reiðir sig á erlenda lánsfjármögnun á mörkuðum. Á það hefur áður verið bent af öðrum lánshæfismatsfyrirtækjum. Til að mæta þessu hefur bankinn lágmarkað áhættuna með því að breikka markvisst hóp skuldabréfafjárfesta og lánveitenda.”



















