Moody´s gefur ríkissjóði Íslands hæstu lánshæfiseinkunn
Húsnæði Seðlabankans.
Á vefsíðu Seðlabanka Íslands er fjallað um álit Moody's, sem kemst að þeirri niðurstöðu að Ísland standi ekki frammi fyrir óhóflegum greiðsluhæfis- eða lausafjárvandræðum vegna óstöðugleika sem nýlega hefur gætt í viðskipta- og fjármálaumhverfi landsins. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er Aaa.
Höfundur skýrslunnar, Joan Feldbaum-Vidra, segir að umtalsverð aukning erlendra skulda bankakerfisins og miklar skammtímaskuldir séu meðal þeirra þátta sem nýlega hafi vakið upp spurningar um kerfisbundna áhættu í bankakerfinu. Ísland sé mjög auðugt land sem vinni að verulega aukinni fjölbreytni í atvinnulífi. Landið hafi nægan aðgang að erlendu lausafé til viðbótar því sem bankarnir hafi og það ætti að duga fyrir stjórnvöld og bankakerfið til að standast óróatíma á markaði.
Þá bendir Feldbaum-Vidra á traust fjármál hins opinbera með skuldahlutföll í kringum 30% af vergri landsframleiðslu og 60% af tekjum, sem eru um helmingur af því sem gerist í Þýskalandi og Frakklandi.
„Ísland er í góðri stöðu til að takast á við hvaða hugsanlegu kröfu á ríkisbjargráð sem gæti sprottið af kerfisvanda hvar sem er í hagkerfinu“, sagði sérfræðingurinn. Aaa lánshæfiseinkunn okkar fyrir Ísland er í samræmi við verstu tilvik af þeim toga,” segir í skýrslunni samkvæmt þýðingu Seðlabankans.
Í matinu segi að Ísland „standi ekki frammi fyrir óhóflegum greiðsluhæfis- eða lausafjárvandræðum vegna óstöðugleika sem nýlega hefur gætt í viðskipta- og fjármálaumhverfi landsins.“
Höfundur skýrslunnar, Joan Feldbaum-Vidra, segir Ísland fá hæstu lánshæfiseinkunn og að horfurnar eru stöðugar þrátt fyrir þá hættu sem fylgi aukinn skuldsetningu hagkerfisins.
|
|
Skýrsla Moody's |



















