Ísland í fjórða sæti hvað varðar samkeppnishæfi

Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs, Ingólfur Bender, Glitni og Halldór Benjamín Þorbergsson, Viðskiptaráði, kynntu nýja könnun ...

Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs, Ingólfur Bender, Glitni og Halldór Benjamín Þorbergsson, Viðskiptaráði, kynntu nýja könnun um samkeppnishæfi þjóða.

Ísland er í fjórða sæti hvað varðar samkeppnishæfi þjóða í nýrri alþjóðlegri könnun, sem IMD-viðskiptaháskólinn í Sviss hefur gert, og er Ísland efst Evrópuríkja. Í fyrra var Ísland einnig í fjórða sæti könnunarinnar, sem Viðskiptaráð Íslands og Glitnir kynntu á blaðamannafundi.

Að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs, sækir Ísland fast að Singapúr sem er í þriðja sæti. Bandaríkin eru efst í könnuninni líkt og á síðasta ári, Hong Kong er í öðru sæti og Singapúr í því þriðja, en engin breyting er á röð fjögurra efstu landa í könnun IMD.

Litið er til fjögurra þátta í könnuninni:

  • Skilvirkni hins opinbera og hækkar Ísland um tvö sæti þar, úr því sjötta árið 2005 í fjórða sæti árið 2006.

  • Gangur íslensks hagkerfis, en þar tekur Ísland stórt stökk upp á við, enda hafa verið miklir uppgangstímar hér á landi að sögn Halldórs. Ísland er hér í sjötta sæti en var í því 17. í fyrra.

  • Skilvirkni viðskiptalífsins er mikil á Íslandi og er Ísland með næst skilvirkasta viðskiptaumhverfið í alþjóðlegum samanburði. Var Ísland einnig í öðru sæti á síðasta ári, að sögn Halldórs.

  • Innviðir hagkerfisins. Þar er Ísland í 11. sæti en færist upp um eitt sæti frá fyrra ári. Að sögn Halldórs hefur Ísland verið á svipuðu róli síðustu fimm ár hvað varðar innviði hagkerfisins. Hér er litið til atriða eins og menntunar, umhverfismála, tæknimála og heilsufars svo eitthvað sé nefnt. Helstu veikleikar Íslands eru að útflutningur á hátækni er lítill og heildarfjöldi tölva.

Halldór segir að framtíðarsýn Viðskiptaráðs sé, að hér verði áfram ráðdeild í ríkisrekstri. Skattar verði lækkaðir á fyrirtæki og einstaklinga. Dregið verði úr ríkisafskiptum, dregið úr hömlum á erlenda fjárfestingu og Ísland kynnt fyrir erlendum aðilum.

Mikilvægt innlegg
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, segir að könnunin sé verðmætt innlegg í þá umræðu sem nú er um Ísland og íslenskt efnahagslíf.

Niðurstaðan í þessari greiningu, líkt og undanfarin ár, sé að Ísland stendur sig vel. Þeir neikvæðu þættir séu í mörgum tilvikum þættir, sem ekki er hægt að gera neitt í, til að mynda fjölgun landsmanna. Segir Ingólfur mikilvægt að hafa skýrslu sem þessa, sem sýni fram á að munur er á Íslandi og ýmsum þeim löndum, sem Ísland hafi verið borið saman við í einhverjum þeim skýrslum sem erlendar greiningardeildir hafa gefið út um íslenskt efnahagslíf að undanförnu. Að hans sögn geta Íslendingar aukið framleiðni og lært mikið af þeim löndum sem eru í þremur efstu sætunum.

Á blaðamannafundinum var spurt um hvort innganga í Evrópusambandið hefði einhver áhrif á stöðu landsins á listanum. Halldór sagði að Ísland væri efst Evrópuþjóða á listanum og það segði allt sem segja þyrfti.

Könnunin hefur verið gerð frá árinu 1989 og eru niðurstöður hennar birtar árlega. Samkeppnishæfi ríflega 60 landa er metið í könnuninni út frá ríflega 300 hagvísum og svörum frá framámönnum í viðskiptalífinu.

Listinn yfir samkeppnishæfustu hagkerfin er þessi:

  1. Bandaríkin
  2. Hong Kong
  3. Singapúr
  4. Ísland
  5. Danmörk
  6. Ástralía
  7. Kanada
  8. Sviss
  9. Lúxemborg
  10. Finnland
  11. Írland
  12. Noregur
  13. Austurríki
  14. Svíþjóð
  15. Holland
  16. Bæjaraland (í Þýskalandi)
  17. Japan
  18. Taívan
  19. Kína
  20. Eistland
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir