Viðskipti
| mbl
| 19.5.2006
| 10:56
| Uppfært
11:50
Sjóvá að fullu í eigu Milestone
Í dag fór fram uppgjör á kaupum Milestone ehf. á 33,4% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. af Glitni banka hf. Sjóvá-Almennar tryggingar er nú 100% dótturfélag Milestone ehf. Kaupin voru að meginhluta fjármögnuð með eigin fé Milestone ehf. og að hluta með láni frá J.P. Morgan.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Glitnir banki hf. munu halda áfram samstarfi sínu um sölu á vátryggingum og annarri fjármálaþjónustu eins og verið hefur. Eftir kaupin á Milestone ehf. 22,2% hlut í Glitni banka, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















