Björgólfur Thor úr stjórn BTC í Búlgaríu
Fjárfestingarfélagið Viva Ventures, sem er í eigu Björgólfs Thors, á 65% hlut í BTC. Þeir sem taka sæti hans í stjórn BTC eru Jeremy Thompson, fyrrverandi forstjóri Cable & Wireless, og Bruce McInroy, sem meðal annars hefur starfað hjá British Telecom.
Björgólfur Thor var í desember á síðasta ári útnefndur fjárfestir ársins í Búlgaríu af búlgarska ríkisútvarpinu en í frétt SNA segir að hann sé umsvifamesti erlendi fjárfestirinn í landinu. Hann hefur fjárfest í Búlgaríu allt frá árinu 1999, þegar hann leiddi kaup lyfjafyrirtækisins Pharmaco á búlgarska lyfjafyrirtækinu Balkanpharma, sem nú er hluti af Actavis-samsteypunni.
Fjárfestingar félaga í eigu Björgólfs Thors í BTC hafa numið sem svarar til nærri hundrað milljarða íslenskra króna. Jafnframt á Novator 34% hlut í EI Bank, áttunda stærsta banka í Búlgaríu, sem á heildareignir upp á nærri fimmtíu milljarða króna.



















