Hættir hjá Opnum kerfum
Forstjóri Opinna kerfa Group, Gylfi Árnason, sest tímabundið í stöðuna en henni gegndi hann áður en Agnar Már var ráðinn. Í tilkynningunni segir að Gylfi muni framfylgja óbreyttum áherslum í stefnu og rekstrarfyrirkomulagi félagsins.
Gylfi sagði við Morgunblaðið að þetta hefði verið ákvörðun Agnars sjálfs og ekki tengst því að nýir eigendur væru komnir að félaginu, en móðurfélagið, Kögun, komst sem kunnugt er í eigu Dagsbrúnar nýlega.
Agnar Már sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði tekið þessa ákvörðun af fúsum og frjálsum vilja, hún hefði alfarið verið hans eigin. Nú tæki við frí með fjölskyldunni og að því loknu myndi hann skoða þau tækifæri sem byðust á markaðnum. Agnar Már er tölvunarfræðingur að mennt og hefur áður starfað hjá Samskipum, Símanum, IBM, Hugviti og Opnum kerfum.



















