Viðskipti
| AP
| 1.8.2006
| 12:29
| Uppfært
13:46
Taprekstur á Kodak sjöunda ársfjórðunginn í röð
Tap Eastman Kodak hefur aukist milli ára og nam tap félagsins 282 milljónum dalaá öðrum ársfjórðungi þessa árs, eða 98 sentum á hlut á tímabilinu 1. apríl til 30. júní. Fyrirtækið tapaði um 155 milljónum dala á sama ársfjórðungi í fyrra en félagið hefur verið rekið með tapi undanfarna sjö ársfjórðunga.
Unnið er að endurskipulagingu á rekstri Eastman Kodak meðal annars með því að bregðast við minnkandi sölu á filmum og eldri tegundum myndavéla. Miðar endurskipulagningin að því að auka styrk fyrirtækisins í stafrænni ljósmyndun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















