Úrskurður Fjármálaeftirlitsins í máli stofnfjáreigenda SPH felldur úr gildi
Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum í júnímánuði 2005 um umfangsmikil viðskipti með stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar hóf Fjármálaeftirlitið rannsókn á því hvort stofnast hefði virkur eignarhlutur með stofnfé í sparisjóðnum.
Fjármálaeftirlitið taldi að ekki hefði verið farið eftir 40. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki í viðskiptum með stofnfjárhluti sparisjóðsins. Í 40. gr. kemur fram að aðilar sem hyggjast eignast virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki skuli leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrirfram. Samþykkis þess skuli ennfremur aflað þegar einstaklingur eða lögaðili eykur svo við eignarhlut sinn að bein eða óbein hlutdeild hans í eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti fer yfir 20, 33 eða 50% eða nemur svo stórum hluta að fjármálafyrirtæki verði talið dótturfyrirtæki hans. Í 2. mgr. kemur fram að með virkum eignarhlut sé átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemi 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem geri kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis.



















