Nýtt fyrirtæki í upplýsingatækni stofnað
Í tilkynningu segir, að stefnt sé að aðkomu öflugra fjárfesta að hinu nýstofnaða fyrirtæki sem einnig verði í eigu starfsmanna.
Til að byrja með mun fyrirtækið einkum einbeita sér að söluráðgjöf og þjónustu á sviði IP tækninnar. Stefna forsvarsmenn Titans að því að færa út kvíarnar mjög hratt og bjóða íslenska markaðnum upp á alhliða upplýsingatækniþjónustu og hefur fyrirtækið tryggt sér viðskiptasamninga sem veita því umboð til að bjóða vörur frá Cisco, HP, Sun og fleiri þekktum framleiðendum á mjög samkeppnishæfu verði.
Titan býður einnig þjónustu þeim erlendu fyrirækjum á Íslandi sem leita til Orange Business Solution, áður Equant, og hefur verið gerður endursölusamningur við Símann því tengdur.
Auglýst verður eftir starfsfólki á næstunni og stefnir Titan að því að vera með um 50 sérfræðinga á sínum snærum innan tveggja ára. Ætlar fyrirtækið að marka sér sérstöðu með því að bjóða upp á bestu fáanlega þjónustu og verður því kappkostað að laða að fyrirtækinu hæfileikaríkasta starfsfólkið á íslenska upplýsingatæknimarkaðinum að því er segir í tilkynningu frá félaginu.



















