Viðskipti
| mbl
| 18.9.2006
| 10:36
Actavis hækkar ekki tilboð sitt í hlutabréf PLIVA
Róbert Wessman, forstjóri Actavis. mbl.is/Golli
Þá segir að í samræmi við framangreint muni Actavis hafa samband við fjármálaeftirlit Króatíu í því skyni að losa þá ábyrgð sem félagið hefur lagt fram vegna tilboðs síns í hlutafé PLIVA. „Bein og óbein eignaraðild Actavis nemur 20,8% af heildarhlutafé í PLIVA og mun félagið fylgjast með framvindu söluferlisins og áskilur sér rétt til að ganga aftur inn í það ferli," segir m.a. í tilkynningunni. Þar er einnig haft eftir Róbert Wessman, forstjóra Actavis að hann telji vaxtartækifæri félagsins liggja víða og að forsvarsmenn þess muni halda áfram að efla góða undirliggjandi starfsemi félagsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















