Viðskipti
| mbl
| 2.10.2006
| 6:23
Nýr tvísköttunarsamningur við Bandaríkin
Samninganefndir Íslands og Bandaríkjanna luku nýverið við gerð nýs tvísköttunarsamnings milli þjóðanna sem koma mun í staðinn fyrir eldri samning þeirra, en sá samningur er frá árinu 1975, að því er segir í Vefriti fjármálaráðuneytisins í dag.
Nýi samningurinn endurspeglar þær breytingar sem átt hafa sér stað í stefnu og áherslum beggja þjóða á sviði tvísköttunarmála sl. þrjá áratugi, eða frá því að eldri samningur var gerður, segir þar ennfremur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















