Utanríkisráðherra og viðskiptafulltrúi Bandaríkjastjórnar vilja ryðja viðskiptahindrunum úr vegi
Valgerður Sverrisdóttir Ómar Óskarsson
Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins tók utanríkisráðherrasérstaklega upp möguleika á fríverslunarsamningi og fjárfestingarsamningi á milli ríkjanna í samtali þeirra, en fjárfestingarsamningur myndi meðal annars greiða fyrir langtímavegabréfsáritunum til Bandaríkjanna til handa íslenskum viðskiptaaðilum.
Á fundinum var ákveðið að hátt settir embættismenn muni hittast með reglulegu millibili til þess að liðka fyrir ofangreindum samningum. Þá lýsti utanríkisráðherra áhyggjum sínum af stöðu Doha-viðræðnanna á fundinum og sagði afar mikilvægt fyrir viðskiptakerfi heimsins og þá sérstaklega fyrir þróunarríkin, að blása nýju lífi í þær.



















