Viðskipti
| AFP
| 16.10.2006
| 6:50
Hagnaður Samsung jókst um 16,1%
Hagnaðar Suður-kóreanska fyrirtækisins Samsung jókst um 16,1% á þriðja ársfjórðungi, í 2,29 milljarða Bandaríkjadala, frá sama ársfjórðungi í fyrra. Fyrirtækið sem er stærsti framleiðandi minniskubba í heiminum og framleiðir fleiri rafmagnstæki, segir að það geri ekki ráð fyrir að kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu muni hafa nein áhrif á starfsemi þess.
Alls starfa 128 þúsund manns hjá Samsung Electronics í 57 löndum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















