Viðskipti
| mbl
| 17.10.2006
| 6:50
Dagsbrún undirbýr sókn á norræna markaði
Dagsbrún skoðar nú frekari sókn með ókeypis dagblöð á norræna markaði en félagið stendur nú að útgáfu Nyhedsavisen í Danmörku. Gunnar Smári Egilsson, sem stýrir Dagsbrún Mediafund í Danmörku, segir við norska blaðið Dagens Næringsliv, að sú hugmynd sem blaðið byggi á, gæti einnig gengið vel í Noregi.
Blaðið segir, að Dagsbrún sé að skoða alls sjö fjölmiðlamarkaði en engin ákvörðun hafi verið tekin um hvar næst verði sótt fram.
„Við höfum skoðað sjö markaði með það fyrir augum, að velja þrjá þeirra og gefa út ný ókeypis dagblöð þar á næsta ári. Þau blöð verða byggð upp með svipuðum hætti og Nyhedsavisen í Danmörku," segir Gunnar Smári.
Löndin sjö eru að sögn Dagens Næringsliv Noregur, Svíþjóð, Finnland, Belgía, Holland, Skotland og Írland.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















