Viðskipti
| mbl
| 27.10.2006
| 9:02
Blátjörn ehf sameinuð Fjárfestingarfélaginu Gretti hf
Blátjörn ehf sem keypti hluti Sunds ehf í Tryggingamiðstöðinni hf í maí í vor hefur verið sameinuð Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. sem er eign Sunds ehf 49,05%, Hansa ehf. 28,51% og Opera fjarfestingar ehf 20,6%, aðrir hlutahfar 1,84%. Sund ehf er eign Gunnþórunnar Jónsdóttur, Jóns Kristjánssonar og Gabríelu Jónsdóttur að jöfnu. Hansa ehf er eign Björgólfs Guðmundssonar og Opera fjárfestingar ehf eru eign Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar að jöfnu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















