Tap Haga nam 121 milljón króna
Rekstrargjöld án afskrifta námu 4.619 millj. kr. og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 1.037 millj. kr. Afskriftir námu 418 millj. kr. og hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta nam 619 millj. kr. á tímabilinu.
Fram kemur í yfirlýsingu félagsins að fyrri hluti rekstrarárs Haga hafi að mörgu leyti gengið vel og afkoma í samræmi við áætlanir stjórnenda. Sala hjá fyrirtækjum Haga hafi verið góð og viðskiptavinum hafi fjölgað. Á síðasta rekstrarári hafi samkeppni á matvörumarkaði haft mikil áhrif á rekstur félagsins. Hagar hafi hins vegar staðist áhlaup keppinauta og standi sterkari eftir. Samkeppni á matvörumarkaði sé þó enn mikil og framlegð þar óviðunandi sé horft til lengri tíma.
Þá segir:
„Ytri aðstæður hafa mikil áhrif á rekstur félagsins. Samkeppni, gengisþróun, eftirspurnarstig og kaupmáttur neytenda hefur þar mikil áhrif. Þrátt fyrir að eftirspurn á íslenskum smásölumarkaði hafi verið mikil á árinu, hefur gengisþróun og aukin samkeppni haft neikvæð áhrif á framlegð félagsins. Neytendum standa fjölmargir valkostir til boða og samkeppni um viðskiptavininn hefur aldrei verið harðari.



















