Fjárfestingarfélagið Grettir með 34,37% í Avion Group
Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, tilkynnti á blaðamannafundi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Kópavogi í gær, að félagið hefði selt allt hlutafé í XL Leisure Group og 51% hlutafjár í Avion Aircraft Trading fyrir samtals um 34 milljarða króna.
Dagsetning lokauppgjörs viðskiptanna er 3. nóvember 2006. Eigendur Fjárfestingafélagsins Grettis eru: Sund ehf. (49,05%), Sund ehf. er í eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur, Jóns Kristjánssonar og Gabríellu Kristjánsdóttur að jöfnu. Ópera Fjárfestingar ehf. (20,6%). Ópera Fjárfestingar ehf. eru eign Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar að jöfnu. Hansa ehf. ( 28,51%). Hansa ehf. er eign Björgólfs Guðmundssonar Aðrir hluthafar (1,84%.
Þeir sem seldu í Avion Group eru: True North Holdings sem er í meirihlutaeigu Hafþórs Hafsteinssonar, Hannesar Hilmarssonar, Magnús Stephensen og Magnúsar Gylfa Thorstenn. En þeir eru allir lykilstjórnendur hjá Avion Group.
Argrímur Jóhannsson, stjórnarmaður í Avion Group.
Phillip Wyatt, forstjóri XL Leisure Group.
Adviceair Holding Ltd sem er fyrirtæki í eigu Hafþórs Hafsteinssonar.
Milos Group sem er fyrirtæki í eigu Hafþórs Hafsteinssonar, Hannesar Hilmarssonar og Magnús Stephensen.
Fidecs Trust Company Ltd sem er starfsmannasjóður og er Eamonn Mullaney, stjórnarmaður í Avion Group einn af sjóðsfélögum.



















