Viðskipti
| mbl
| 1.11.2006
| 13:32
Actavis setur nýtt lyf á markað í Svíþjóð
Actavis er fyrsta samheitalyfjafyrirtækið sem setur á markað samheitalyfið Sumatriptan í Svíþjóð sem er notað við bráðu mígreni. En einkaleyfi frumlyfsins rann nýlega út. Lyfið er þróað og framleitt á Íslandi og verður fáanlegt í 50mg og 100mg húðuðum töflum, samkvæmt tilkynningu.
Actavis hefur markaðssett 28 samheitalyf á Norðurlöndunum á árinu 2006 og er félagið í hópi stærstu lyfjafyrirtækjanna á hverjum markaði. Búist er við að tekjur á svæðinu verði tæplega 9 milljarðar króna á árinu 2006, eða um 7% af heildartekjum samstæðunnar.
Sumatriptan er samheitalyf frumlyfs Glaxo SmithKline, Imigran® og Imigran Novum® og er notað við bráðu mígreni. Sala á frumlyfinu Imigran® og Imigran Novum® töflum í Svíþjóð nam einum milljarði króna á síðasta ári og er lyfið það söluhæsta í sínum flokki, samkvæmt fréttatilkynningu frá Actavis.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















