Eignarhaldsfélagið ehf. kaupir ráðandi hlut í Verði Íslandstryggingu hf.
Í tilkynningu segir, að Vörður Íslandstrygging muni áfram starfa undir eigin vörumerki en áhersla verði lögð á að auka þjónustu félagsins.
Vörður Íslandstrygging varð til í upphafi árs 2005 við sameiningu tveggja tryggingarfélaga, Varðar og Íslandstryggingar. Vörður var stofnað árið 1926, þá undir nafninu Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar en nafni þess var breytt árið 1996. Íslandstrygging var stofnuð árið 2002 og lagði félagið áherslu á að þjóna fyrirtækjum og einstaklingum.
Samhliða kaupum Eignarhaldsfélagsins á ráðandi hlut í Verði Íslandstryggingu mun Guðmundur Jóh. Jónsson verða ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Guðmundur hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu og starfaði meðal annars hjá Sjóvá, síðar Sjóvá-Almennum, í rúm 20 ár. Þann tíma sem Guðmundur starfaði hjá Sjóvá gegndi hann lengst af stjórnunarstörfum og var hann meðal annars starfsmannastjóri, framkvæmdastjóri tjónasviðs, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs og fulltrúi forstjóra. Guðmundur gegnir nú starfi forstöðumanns útlánasviðs SP-Fjármögnunar. Guðmundur hefur einnig reynslu af setu í stjórnum ýmissa fyrirtækja og má þar nefna Nýherja og Securitas þar sem hann gegndi stjórnarformennsku. Guðmundur er viðskiptafræðingur og er með MBA gráðu frá Edinborgarháskóla.



















