Frekar auðvelt að reka fyrirtæki á Íslandi
Þau lönd sem standa Íslandi framar eru: Singapúr, Nýja-Sjáland, Bandaríkin, Kanada, Hong Kong, Bretland, Danmörk, Ástralía, Noregur, Írland og Japan. Samkvæmt skýrslunni er hinsvegar erfiðast að reka fyrirtæki í Kongó, Austur-Tímor og Gínea-Bissá.
Samkvæmt upplýsingum frá Viðskiptaráði Íslands þykir Ísland standa framarlega hvað varðar vernd eignarréttar og einnig þykir auðvelt að fá samningum framfylgt hérlendis, en Ísland er í 8. sæti hvað hvort tveggja varðar. Það sem helst stendur rekstri fyrirtækja hér fyrir þrifum er talið vera, að erfitt er að ráða og reka starfsfólk, en þar er Ísland í 42. sæti. Þá þykir Ísland standa öðrum löndum að baki hvað varðar vernd fjárfesta og er í 83 sæti hvað það varðar.
Þegar er litið til gagnsæi viðskipta, skaðabótaverndar vegna ólögmætra innherjaviðskipta og möguleika á að höfða mál gegn stjórnendum vegna misferla. Melissa Johns, sérfræðingur hjá Alþjóðabankanum er væntanleg hingað til lands eftir helgi og mun kynna skýrsluna á morgunverðarfundi á Grand hótel á þriðjudag sem Viðskiptaráð Íslands, utanríkisráðuneytið, Alþjóðabankinn og Þróunarsamvinnustofnun standa sameiginlega fyrir.



















