Verðmæti CRa tvöfaldast á tveim árum
Ceske Radiokomunicace (CRa) tékkneska símafyrirtækið sem Björgólfur Thor Björgólfsson seldi nú í vikunni, var ekki nema hluti af eignum fjárfestingafélags Björgólfs, Novators, í símafyrirtækjum í Mið-Evrópu. Novator er í dag leiðandi fjárfestir í símafyrirtækjum í Póllandi, Búlgaríu, Grikklandi og Finnlandi, en í vikunni var hins vegar leitt líkum að því í erlendum fjölmiðlum að frekari sala á símafélögum Novators kunni að vera í farvatninu.
Þetta er í fyrsta sinn sem félög Björgólfs innleysa verulegan söluhagnað af fjárfestingum sínum í símafyrirtækjum, en áætla má að hagnaður hans nemi 56 milljörðum króna. Um miðbik ársins 2004 bætir Björgólfur og fjárfestar honum tengdir verulega við hlut sinn í CRa, um haustið gera þeir yfirtökutilboð til annarra hluthafa og undir lok ársins var félagið svo afskráð af aðallista kauphallarinnar í Prag.
Hækkar meira en markaðurinn
Greining Landsbankans segir í Vegvísi í gær að markaðsvirði bréfanna í kringum afskráninguna hafi þá verið um 40 milljarðar króna miðað við hæsta verð. Reiknar deildin með að kaupverðið kunni að hafa verið eitthvað hærra þar sem ekki sé óalgengt að fjárfestar borgi hærra verð en gangverð á markaði þegar um yfirtöku sé að ræða. Gera má því ráð fyrir því að verðmæti félagsins hafi rúmlega tvöfaldast á þeim tveimur árum sem Björgólfur hefur farið með eignarhlut í félaginu.Á þessum tveimur árum hefur verð hlutabréfa á tékkneska markaðinum hækkað um 70%, þannig að arðsemi fjárfestingarinnar er töluvert umfram vöxt markaðarins. Ekki er hægt að benda á eitthvert eitt ákveðið atriði sem skýrir þessa miklu verðmætaaukningu aðra en að vel hafi gengið að hagræða í rekstrinum á tímabilinu.
Sala kann að vera í farvatninu
Fjárfestingafélagið Novator á nú fjarskiptafyrirtæki í fjórum löndum; Finnlandi, Búlgaríu, Póllandi og Grikklandi. Novator er stærsti einstaki hluthafinn í Elisa, næststærsta farsímafyrirtækis Finnlands, með 10% eignarhlut. Novator á í tveimur símafélaögum í Póllandi, Netia og P4. Í Búlgaríu á Novator Telecom Bulgaris nærri 75% í símafyrirtækinu BTC. Þá á Novator 26% eignarhlut í gríska símafyrirtækinu Forthnet. Um síðustu áramót var talið að verðmæti fjárfestinganna væru vel á annað hundruð milljarða króna.The Financial Times segir í frétt að salan á CRa marki tímamót þar sem hún sýni vaxandi áhuga einkafjárfestingasjóða á fjarskiptafélögum og vilja þeirra til að ráðast í mjög skuldsett verkefni í Mið-Evrópu. Í erlendum fjölmiðlum er líkum leitt að því að kaup á BTC í Búlgaríu og Elisa í Finnlandi séu í farvatninu. Þessar fréttir er óstaðfestar. Björgólfur Thor er umbreytingafjárfestir að eigin sögn og margt bendir til að hagstæður seljendamarkaður sé nú á fjarskiptamarkaði í Mið-Evrópu og þannig gætu verið teikn á lofti.
Í hnotskurn
» 1999 Björgólfur kaupir Balkanpharma í Búlgaríu við einkavæðingu.» 2000 Balkanpharma rennur saman við Pharmaco.
» 2002 Björgólfur og viðskiptafélagr selja Bravo-bruggverksmiðjuna til Heineken og kaupa ráðandi hlut í Landsbankanum.
» 2003 Eignast hlut í Burðarási og CRa í Tékklandi
» 2004 Kaupir hlut í BTC í Bulgaríu við einkavæðingu. Stofnar Novator. Kaupir hlut í Saunalahti í Finnlandi sem sameinast Elisa.
» 2005 Burðarás og Straumur sameinast. Eignast hlut í El Bank í Búlgaríu.



















