Stefnt að því að skrá Northern Travel Holding á markaði
Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður Northern Travel Holdings, segir við fréttaþjónustu Børsen, að stefnt sé að því að félagið skili hagnaði á næsta ári og að það verði skráð á hlutabréfamarkaði eftir tvö ár eða svo.
„Við erum að búa til stærsta ferðaþjónustufyrirtæki Norðurlandanna á lággjaldasviðinu og það á að skila hagnaði á næsta ári og því þarnæsta," hefur Børsen eftir Pálma. Hann segir það áhugaverðan möguleika að skrá hlutabréfin í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.
Børsen segir, að nýja fyrirtækið gæti ógnað norræna flugfélaginu SAS á flugleiðinni yfir Atlantshaf því breska leiguflugfélagið Astraeus hafi flugrekstarleyfi fyrir lengri flugferðir. Pálmi vildi hins vegar ekki tjá sig um slíkt.
Þetta er í annað skipti, sem Pálmi eignast Sterling. Hann keypti félagið fyrst vorið 2005 en seldi það síðan um haustið til FL Group.



















