Viðskipti
| mbl
| 4.1.2007
| 12:36
Forstjóri Sterling í stjórn félagsins
Almar Örn Hilmarsson. mbl.is
Að sögn danska viðskiptablaðsins Børsen fer Hannes út úr stjórn félaganna Sterling Airlines A/S og Flyselskabet af 15. juli 2005 A/S og kemur Almar Örn inn í stjórn beggja félaganna. Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri FL Group, fer einnig út úr stjórnum félaganna.
FL Group seldi nýlega Sterling til nýstofnaðs félags, Northern Travel Holding, en hluthafar þess félags eru íslensku fjárfestingafélögin Fons, FL Group og Sund.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















