Viðskipti
| mbl
| 17.1.2007
| 13:13
Farið fram á að stjórnarformaður Hyundai fái 6 ára dóm
Chung Mong-koo Reuters
Chung Mong-koo er ákærður fyrir að hafa dregið að sér 74 milljónir Bandaríkjadala, 5,2 milljarða króna, úr sjóðum félagsins til eigin nota. Hann er jafnframt ákærður fyrir að hafa reynt að skaða samkeppnisaðila með vafasömum samningum.
Hyundai og dótturfélag þess, Kia Motors, sem sonur Chung stýrir, eru með um 70% markaðshlutdeild í útflutningi bifreiða frá Suður-Kóreu, að því er fram kemur á vef BBC.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















