Þrjú ný samheitalyf frá Actavis á markað í Evrópu
mbl.is/
Lyfin eru hormónalyfið Fínasteríð, þunglyndislyfið Mirtazapín og flogaveikilyfið Topiramate. Fínasteríð, sem er samheitalyf frumlyfsins Proscar frá lyfjafyrirtækinu Merck, er notað við góðkynja stækkun blöðruhálskirtils og hefur verið selt á Íslandi í nokkur ár undir heitinu Fínól. Til að byrja með er lyfið selt á Spáni, í Portúgal og Slóveníu í töfluformi og nemur sala frumlyfsins um 60 milljörðum króna á ári í heiminum.
Mírtazapín munnlausnartöflur eru samheitalyf frumlyfsins Remeron frá lyfjafyrirtækinu Organon og nemur sala frumlyfsins um 20 milljörðum króna á ári í heiminum. Topiramate verður selt í Portúgal en þar var ekkert einkaleyfi fyrir lyfinu, en einkaleyfið rennur út 2009 á helstu mörkuðum í Evrópu. Heiti frumlyfsins er Topimax frá frumlyfjafyrirtækinu Janssen-Cilaq, að því er segir í tilkynningu frá Actavis.
Lyfin verða markaðssett bæði undir eigin vörumerkjum Actavis og seld til þriðja aðila í gegnum dótturfélag samstæðunnar, Medis. Í tilkynningu kemur fram að búist er við að Mirtasapín verði í hóp söluhærri lyfja sem seld verða til þriðja aðila.



















