Hlutafé í evrum rökrétt framhald
Friðrik Jóhannsson, Ingólfur Bender og Jón Þór Sturluson fluttu erindi á morgunverðarfundi FVH í gær um gjaldmiðil viðskiptalífsins. Morgunblaðið/G.Rúnar
Friðrik sagði m.a. að færsla yfir í evrur styddi við vöxt Straums-Burðaráss á margan hátt, m.a. stöðu hans á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Sagði hann að skráning hlutafjár Straums í evrum væri rökrétt og eðlilegt framhald af færslu bókhalds í evrum en sú ákvörðun lægi ekki fyrir og yrði aðeins tekin af hluthöfum bankans.
Evruvæðing eðlileg
Ingólfur Bender rakti m.a. hverju evran hefði skilað þeim ríkjum sem tekið hefðu hana upp en minnti á að til þess að taka upp evruna væri nauðsynlegt að ganga í Evrópusambandið. Ingólfur sagði illmögulegt að reikna sig að endanlegri niðurstöðu um það hvort heppilegt væri fyrir Ísland að vera með evruna. Hann benti á að evruvæðing bankanna væri eðlilegur þáttur í útrás þeirra en gæti komið af stað hugvakningu um þverrandi samkeppnishæfni krónunnar gagnvart evrusvæðinu.Jón Þór dró fram margvíslegan efnahagslegan ávinning af því að taka upp evruna, m.a. á verðlag, umfang viðskipta og samkeppni. Hann tók þó fram að ávinningurinn yrði enn meiri ef Bretland, Danmörk og Svíþjóð tækju upp evruna. Jón Þór sagði ókostinn m.a. felast í missi sjálfstæðrar peningastefnu og hægari aðlögun raunlauna að aðstæðum hverju sinni en benti jafnframt á að árangur af peningamálastefnu hér væri ekki góður og það hefði komið fram í mikilli verðbólgu og miklum sveiflum í framleiðslu.



















