New York Times skilar tapi
Í tilkynningu frá New York Times kemur fram að fjölmiðlar í eigu félagsins glími við rekstrarvanda vegna samdráttar í sölu auglýsinga, slæms útlits í efnahagsmálum og aukinnar samkeppni frá fjölmiðlum á netinu.
New York Times keypti Boston Globe á 1,1 milljarð dala árið 1993 og greiddi 296 milljónir dala fyrir Telegram & Gazette árið 2000.
Ef litið er fram hjá niðurfærslunni nam hagnaður New York Times 87,9 milljónum dala á fjórða ársfjórðungi eða 61 sent á hlut. Á sama tímabili árið 2005 nam hagnaður félagsins 63,1 milljón dala eða 43 sentum á hlut.
Tekjur fjölmiðlasamstæðunnar jukust um 4,3% í ársfjórðungnum og námu 931,5 milljón dala samanborið við 893,1 milljón dala 2005. Skýrast auknar tekjur einkum af því að fjórðungurinn var viku lengri í fyrra en árið á undan auk þess sem tekjurnar voru mun meiri í desember en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Greiningaraðilar sem Thomson Financial fékk til að spá fyrir um afkomu New York Times höfðu spáð því að tekjurnar næmu 904 milljónum dala og hagnaðurinn yrði 46 sent á hlut.
Auglýsingatekjur fjölmiðla New York Times á Nýja Englandi drógust saman um 6,1% á fjórða ársfjórðungi og 9% fyrir árið í heild.



















