Viðskipti
| AFP
| 6.2.2007
| 7:54
Methagnaður hjá Toyota
Toyota hefur m.a. sett nýjan pallbíl, Tundra, á Bandaríkjamarkað. Reuters
Hagnaður Toyota nam 242 milljarða íslenskra króna. Tekjur jukust um 15,2% frá samsvarandi ársfjórðungi árið áður og námu 6,15 billjónum jena, sem einnig er met.
Toyota breytti ekki áætlun fyrir rekstarárið í heild og segist enn reikna með 1,55 billjóna jena hagnaði á árinu öllu og tekjur verði 23,2 billjónir jena.
Þá segist fyrirtækið standa við spá um að það framleiði 8,47 milljónir bíla á rekstarárinu og 9,42 milljónir bíla á árinu 2007. Samkvæmt því mun Toyota verða stærsti bílaframleiðandi heims á árinu og fara fram úr General Motors.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















