Viðskipti
| Morgunblaðið
| 7.2.2007
| 5:30
| Uppfært
7:24
Icelandair semur við SAS í Frakklandi
Icelandair hefur samkvæmt frétt í Børsen frá í gær samið við SAS Groundservice um flugafgreiðslu á Charles de Gaulle-flugvellinum í París. Tók samningurinn gildi 1. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða 2.450 flug yfir árið.
Haft er eftir Ástþóri Ingasyni hjá Icelandair að SAS Groundservice að fyrirtækið hafi boðið bestu þjónustuna og verðið, sem flugfélagið hefði gert kröfur um. Icelandair flýgur yfir vetrartímann fjórum sinnum í viku til Parísar og níu sinnum yfir sumarið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















