Fons selur í FL Group fyrir 8,7 milljarða króna
Kaupendur hlutar Fons í FL Group eru þrjú félög sem tengjast Baugi Group. BG Capital ehf., sem er í 100% eigu Baugs, kaupir um 111,3 milljónir hluta, eða um 1,4% af heildarhlutafénu. Fasteignafélagið Stoðir, sem Baugur á 48,3% hlut í, kaupir svipaðan hlut, eða um 111,9 milljónir hluta, um 1,4%. Þá kaupa Hagar hf., sem Baugur á 71% hlut í, um 72,5 milljónir hluta, eða um 0,9% af heildarhlutafénu.
Eftir þessi viðskipti er eignarhlutur Baugs Group og fjárhagslega tengdra aðila í FL Group samtals um 1.553,3 milljónir hluta, eða 19,55% af heildarhlutafé FL Group.
Spurður um hvað Fons ætli að gera við það fjármagn sem fæst fyrir hlutinn í FL Group segir Pálmi Haraldsson að félagið sé að vinna að ákveðnu verkefni. Ekki sé þó tímabært á þessu stigi að gefa upp hvað það sé.



















